|
27.08.2010 12:54:11 / ran
í dag föstudaginn 27,ágúst verður sundæfing í Hrísey. Farið verður með 13.30 ferjunni til Hríseyjar og með 17 ferjunni til baka... byrjum hauststafið á skemmtilegri æfingu, sjáumst hress á bryggjunni
»
02.08.2010 16:43:08 / ran
Hópurinn sem fór frá Rán þetta árið voru 11-12 ára Tinna Karen, Embla Eir, 11-12 áraTrausti Ómar og Baldur Smári. 13-14 ára Eva Hrönn, Lilja, Katrín Eva Úrslitin voru svona ;-)
50 m skriðsund 6-Tinna,19-Embla 7-Trausti,8-Baldur 3-Eva Hrönn,4-Lilja,7-Katrín Eva
50 m bringusund 9-Tinna,11-Embla 5-Baldur,6-Trausti 3-Eva Hrönn,11-Katrín Eva,12-Lilja
100 m fjórsund 7-Tinna 2-Eva Hrönn,4-Lilja,10-Katrín Eva
50 m flugsund 5-Lilja,7-Eva Hrönn
100 m bringusund 4-Eva Hrönn,12-Lilja,13-Katrín Eva
100 m skriðsund 3-Eva Hrönn,4-Lilja,6-Katrín Eva
50 m baksund 7-Tinna Karen 5-Katrín Eva
4*50m skriðsund 2-Tinna karen (í blandaðri sveit) 1-Eva Hrönn,Lilja,Katrín og Filippía Gautadóttir(burtfluttur Dalvíkingur)
4*50m fjórsund 2-Eva Hrönn, Lilja, Katrín Eva og Filippía
Glæsileg frammistaða hjá hópnum og við fengum mjög gott veður og allt gekk mjög vel hjá okkur... kv Berglind
»
01.12.2009 14:39:08 / ran
Framfaramótið var haldið 30.nóv og fengum við gott veður, ekki mikið frost. 19 krakkar syntu og tekinn var tími hjá þeim. Eftir mótið var svo haldið í Víkurraust og þar fór fram afhending þátttökuverðlauna sem allir fengu og svo voru mætinga bikararnir afhentir, fyrir 1 hóp 1-3 bekk fékk Agnes 2 hóp 4-5 bekk fékk Trausti Ómar og 3 hópur 5-8 bekkur fékk Tinna Karen. eftir var svo pizza og safi.. takk fyrir þátttökuna krakkar... og foreldrar að aðstoða með tímatöku.. kv Berglind
»
26.08.2009 17:31:00 / ran
jæja nú fara æfingar aftur að byrja hjá okkur. Sundæfingar starfsárið 2009 - 2010 hefjast í Sundlaug Dalvíkur mánudaginn 31. ágúst. Æfingar eru mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Sundæfing fyrir 1- 4 bekk er kl. 16.30 -17.15. Æfingatími hjá 5 bekk og eldri er kl. 17.00. Æfingagjöld eru 2.000 kr. á mánuði. sjáumst hress og kát....
»
30.07.2009 23:57:02 / ran
Nú er komið á hreint hverjir fara að keppa, en það eru Katrín Eva, Lilja, Eva Hrönn og Tinna Karen. Svo mun fyrrverandi félagi koma og vera með þeim í boðsveitunum , en það er Júlía Ýr sem nú er hjá Óðni á Akureyri. Sendum þeim öllum góðar kveðjur og gangi ykkur vel en muna að hafa GAMAN AÐ ÞESSU... sjáumst hress á Sauðárkróki.... góða Verslunnarmannahelgi kv, Berglind
»
16.07.2009 22:19:53 / ran
Nú eru byrjaðar æfingar fyrir þá sem ætla að keppa á Landsmótinu á Sauðárkróki um Verslunnarmannahelgina. 1 æfingin var í dag og er stefnt á að hafa 6 æfingar. Næsta æfing verður mánudaginn 20.júli kl 10,30 í Sundlaug Dalvíkur. nánari upplýsingar , hafið samband við Berglindi 6625270..
»
14.06.2009 15:38:26 / ran
Við í Sundfélaginu Rán þökkum krökkum og foreldrum gott samstarf á liðnu skólaári og sjáumst hress og kát þegar næsta skólaár hefst, upplýsingar verða settar hér inn þegar æfingar nálgast.. kv Berglind
»
27.05.2009 23:11:18 / ran
það verða sundæfingar fyrir þá sem vilja, frjáls mæting, miðvikudag 3,júní og fimmtudaginn 4,júní kl:17, allir aldursflokkar saman. þessar æfingar eru settar inn til að styðja við Nökkva og Þorra en þeir eru að fara á Sundmót á Akranesi 5-7,júní.. gangi ykkur vel strákar.. kv.Berglind
»
27.05.2009 18:54:48 / ran
jæja nú ætlum við að slútta sundárinu hjá okkur... mánudaginn 1.júní biðjum við ykkur að mæta við sundlaugina á Þelamörk kl:13.00. Farið verður að sprella í lauginni, svo ef gott veður verður förum við í boltaleiki á leikvellinum, komið endilega með bolta bæði körfu og fótbolta..Foreldrar eru kvattir að mæta með krökkunum sínum og taka þátt í þessu.. ef vantar far fyrir krakka hafið þá samband við Huldu 8993906, Oddný 8963276,Berglindi 6625270 eða Elínu 6169629 og þær reyna að koma öllum fyrir .. sjáumst hress og kát á ÞELAMÖRK.... kv Berglind
»
20.05.2009 22:28:34 / ran
Við ætlum að hittast í Sundlauginni miðvikudaginn 27.maí kl:16.15 og gróðursetja tré, 1 fyrir hvern krakka sem er að æfa sundið hjá okkur svo gerum við eitthvað skemmtilegt,. Mætum með stunguspaða og bros á vör..... kv Berglind.
»
15.05.2009 15:51:43 / ran
Síðasta Framfaramótið hjá okkur þetta skólaár , verður mánudaginn 18.maí og eiga allir að vera komnir út í laug kl:16.30 og byrja á upphitun. Tímataka hefst kl:17.00. Tekinn verður tíma á öllum greinum sem hafa verið synt sl mót, nema að þeir sem tóku þátt í Lionsmóti synda ekki sömu greinar og þar, heldur gefst þeim tækifæri að prófa aðrar greinar og fá tíma í þeim..Foreldrar endilega kvattir til að koma og fylgjast með og hjálpa við að taka tímann.. kveðja Berglind
»
13.05.2009 19:12:13 / ran
Lionsmótið var haldið þann 10.maí en átti að vera þann 9.maí en var frestað vegna snjókomu og færðar. þáttakendur komu frá Tindastól á Sauðárkróki, Óðni á Akureyri og svo frá Rán á Dalvík. þáttakendur voru um 70, gekk mótið bara vel, veðrið var að stríða okkur, rigning og vindur. Allir okkar keppendur voru að bæta tímana sína ... Til hamingju krakkar..
»
23.02.2009 13:36:36 / ran
marttagtype name="time" namespaceuri="urn  chemas-microsoft-com  ffice  marttags" />
Ferð til Akureyrar />
Laugardaginn 28. febrúar ætlar sundfélagið
Rán að heimsækja Sundlaug Akureyrar.
Elsti hópurinn fer á tvær æfingar fyrri kl. 10:00-11:00
(innilaug) og seinni kl. 13:30(útilaug). Á milli
æfinganna verður eitthvað húllum hæ.
Yngri hóparnir verða saman á æfingu kl. 11:00-12:00(innilaug).
Við fáum gestaþjálfara frá Óðni.
> >
Foreldrar þurfa sjálfir að koma iðkendum á
staðinn.
Munum að mæta tímalega J
»
21.02.2009 18:17:47 / ran
Ágætu félagar
Framfaramót Sundfélagsins Ránar er á mándagurinn 23. febrúar 2009.
Mæting er kl. 16.45 ofan í laug til að hita upp.
Byrjað verður á tímatöku hjá 1. og 2. bekk.
Allir þátttakendur fá verðlaun.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
50 m sund með korki eða án korks fyrir 1. og 2. bekk
50 m sund með eða án froskalappa fyrir 1. og 2. bekk
50 m bringusund
100m bringusund
200 m bringusund
50m skriðsund
100m skriðsund
50 m baksund
100 m baksund
400 m skriðsund
Vinsamlegast látið vita ef óskað er eftir að synda önnur sund.
Mælt er með að sundmenn 8 ára og eldri syndi tvær greinar
Óskað verður eftir þátttöku foreldra með tímatöku á staðnum.
Heitt verður á könnunni og bollur í tilefni dagsins í boði Kristjánsbakarís.
Hlakka til að sjá sem flesta.
Fyrir hönd stjórnar Sundfélagsins Ránar
Elín
»
19.02.2009 11:31:46 / ran
Mánudaginn 23. febrúar verður framfaramót Ránar. Tímasetning verður sett inn fljótlega.
Frí verður á æfingum á Öskudag 25. febrúar.
»
Síður: 1 2 3
|